Einherji dregur karlaliðið út úr Íslandsmótinu

Leikmenn og stuðningsfólk Einherja fagnar eftir sigur liðsins í 4. …
Leikmenn og stuðningsfólk Einherja fagnar eftir sigur liðsins í 4. deildinni síðasta haust. Ljósmynd/Einherji.net

Einherji á Vopnafirði mun ekki senda karlalið á Íslandsmótið í knattspyrnu á þessu ári en félagið varð meistari 4. deildar á síðasta tímabili og átti því að leika í 3. deildinni í ár.

Stjórn Einherja birti tilkynningu þess efnis á heimasíðu sinni í dag þar sem skýrt var frá því að ekki hefði tekist að manna liðið í ár. Meistaraflokkur kvenna mun hins vegar halda sínu striki og spilar áfram í 2. deild og starfsemi yngri flokka verður áfram af fullum krafti á Vopnafirði.

Einherji vann mjög sannfærandi sigur í 4. deildinni á síðasta ári en liðið var taplaust í 20 leikjum og skoraði 90 mörk gegn aðeins 16.

Ýmir úr Kópavogi mun taka sæti Einherja í 3. deildinni eftir að hafa endað í þriðja sæti 4. deildar á síðasta ári, og þá mun Skallagrímur úr Borgarnesi væntanlega færast upp úr nýrri 5. deild og í 4. deildina. Þá verður lið úr nýrri utandeild KSÍ væntanlega fært upp í 5. deildina í staðinn.

Tilkynningin hljóðar þannig:

Kæru Einherjar

Við í stjórn Einherja þurfum því miður að tilkynna ykkur að ekki verður hægt að tefla fram liði í mfl karla sumarið 2023. Ástæðan er einfaldlega sú að ekki var nægur mannskapur. Eftir miklar vangaveltur og tilraunir til að leysa þessi mál var þetta niðurstaðan. Okkur þykir það mjög leitt en að sama skapi að þá þurfum við að hugsa um hag Ungmennafélagsins Einherja og teljum við þetta það eina rétta.

Við munum hins vegar tefla fram meistaraflokki kvenna og er verið að vinna að því að ráða þjálfara. Vonandi getum við tilkynnt um það á allra næstu dögum. Við munum að sjálfsögðu leggja metnað í það starf líkt og undanfarin ár.
 
Einnig erum við að vonast til að geta ráðið inn þjálfara fyrir yngri flokka. Yngri flokka starfið hefur gengið mjög vel og hefur orðið töluverð fjölgun á iðkendum í vetur. Það er okkar markmið að reyna fá meiri festu í yngriflokkastarfið og halda áfram því góða starfi sem unnið hefur verið.
 
Við erum bjartsýn á framtíðina þrátt fyrir þessar erfiðu fréttir varðandi mfl. karla. Við vonandi getum komið með jákvæðar fréttir varðandi þjálfaramál sem allra fyrst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert