Á heimleið frá Svíþjóð

Oliver Stefánsson í baráttunni með Skagamönnum í sumar.
Oliver Stefánsson í baráttunni með Skagamönnum í sumar. mbl.is/Óttar Geirsson

Knattspyrnumaðurinn Oliver Stefánsson hefur rift samningi sínum við sænska úrvalsdeildarfélagið Norrköping.

Þetta staðfesti leikmaðurinn í samtali við fótbolta.net en Oliver, sem er tvítugur, er uppalinn hjá ÍA á Akranesi.

Hann gekk til liðs við Norrköping frá ÍA í mars 2019 en hann lék með Skagamönnum á láni síðasta sumar þar sem hann kom við sögu í 23 leikjum í Bestu deildinni.

Þá tilkynnti leikmaðurinn einnig í samtali við fótbolta.net að hann ætlaði sér að spila hér á landi í sumar.

Varnarmaðurinn á að baki 18 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands þar sem hann hefur skorað eitt mark.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert