Leikir A-landsliðs karla áfram á Viaplay

Íslenska landsliðið hefur leik í undankeppni EM 2024 á fimmtudag.
Íslenska landsliðið hefur leik í undankeppni EM 2024 á fimmtudag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Streymisveitan Viaplay mun áfram sýna leiki A-landsliðs karla í knattspyrnu. Fram undan eru fyrstu leikirnir í undankeppni EM 2024, gegn  Bosníu og Hersegóvínu þann 23. mars og Liechtenstein þremur dögum síðar.

Hjörvar Hafliðason, yfirmaður íþrótta hjá Viaplay, er ekki í vafa um að íslenska landsliðið eigi mjög góða möguleika í undankeppninni.

„Þetta er lið sem gæti farið á EM í Þýskalandi á næsta ári. Blanda af ungum spennandi leikmönnum eins og Hákoni Haraldssyni og Jóni Degi með reynslumiklum mönnum úr gullkynslóðinni,“ sagði Hjörvar í fréttatilkynningu frá veitunni.

Undir það tók Rúrik Gíslason, knattspyrnusérfræðingur hjá Viaplay.

„Ísland er að fara að láta til sín taka í alþjóðlegum bolta á ný. Þarna eru nýir spennandi leikmenn sem hafa að undanförnu leikið vel með félagsliðum sínum. Við eigum að vera bjartsýn. EM er raunhæft markmið.“

Til að horfa á útsendingar frá leikjum íslenska landsliðsins þarf Viaplay Total áskrift.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert