Leika með sorgarbönd í minningu Þuríðar

Íslenska karlalandsliðið mun bera sorgarbönd í Bosníu á fimmtudag.
Íslenska karlalandsliðið mun bera sorgarbönd í Bosníu á fimmtudag. Ljósmynd/Alex Nicodim

Þrjú karlalið Íslands í knattspyrnu, A-landsliðið ásamt U19-ára og U17-ára liðunum, munu í vikunni leika með sorgarbönd til að heiðra minningu Þuríðar Örnu Óskarsdóttur, sem féll nýverið frá eftir löng og erfið veikindi.

Þuríður Arna var dóttir Óskars Arnar Guðbrandssonar, starfsmanns á samskiptadeild Knattspyrnusambands Íslands, og Áslaugar Óskar Hinriksdóttur.

U17 karla mætir Svartfjallalandi á miðvikudag í undankeppni 2023 og sama dag leikur U19 karla við Tyrkland í undankeppni 2023. Á fimmtudag leikur A-landslið karla sinn fyrsta leik í undankeppni EM 2024, gegn Bosníu og Hersegóvínu.

Í þessum þremur leikjum munu íslensku liðin leika með sorgarbönd til að heiðra minningu Þuríðar Örnu, sem féll frá aðeins tvítug að aldri.

Ákveðið hafði verið fyrir nokkru síðan að leika með sorgarbönd í leik U19 karla í virðingarskyni við allt það fólk sem lést eða á um sárt að binda vegna jarðskjálftanna sem skullu á Tyrklandi og Sýrlandi fyrr á árinu, og er ástæðan fyrir sorgarböndum í þeim leik því tvíþætt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert