Dagbók frá Zenica: Þar sem ævintýrið byrjar

Í bakgrunninum má sjá mosku, ekki langt frá kirkjunni.
Í bakgrunninum má sjá mosku, ekki langt frá kirkjunni. mbl.is/Jóhann Ingi

Leikur Íslands og Bosníu í undankeppni EM karla í fótbolta verður spilaður á Bilino Polje-vellinum í Zenica. Zenica er iðnaðarborg, 70 kílómetra norður af höfuðborginni Sarajevo.

Zenica er ekki túristaborg. Fáir í borginni tala ensku og borgin er hve þekktust fangelsi sem var það stærsta þegar Júgóslavía var og hét og stærstu stálverksmiðju heims.

Bilino Polje-völlurinn, sem leikið verður á í kvöld.
Bilino Polje-völlurinn, sem leikið verður á í kvöld. mbl.is/Jóhann Ingi

Vegna þessa er loftið í borginni ekki ósvipað og í Reykjavík á áramótunum og mengunin mikil. Þá brenna íbúar borgarinnar gjarnan við og kol til að hita upp húsin sín.

Í kringum borgina má enn sjá merki þess að stríð herjaði á íbúa þess undir lok síðustu aldar. Mörg hús þarfnast viðhalds og hafa munað fífil sinn fegurri. Í bakgrunninum eru stórglæsilegir fjallagarðar og er náttúran umhverfis borgina gríðarlega falleg.

Zenica er borg í miðri Bosníu.
Zenica er borg í miðri Bosníu. mbl.is/Jóhann Ingi

Völlurinn er hinn ágætasti og er von á mikilli stemningu í kvöld. Fólkið er gríðarlega almennilegt og forvitið um Ísland. Bosnískir blaðamenn kepptust um að hjálpa þegar ofanritaður þurfti aðstoð fyrir blaðamannafund á vellinum og fólk er hið kurteisasta.

Staðan í Bosníu hefur oft verið flókin. Hér eru kirkjur og moskur hlið við hlið og þjóðhópar sem kljást. Hafa Serbar og Króatar gjarnan viljað skipta sér að stjórnmálum í Bosníu, sem getur skapað hita.

Eitt helsta kennileiti Zenica er áberandi gul kirkja.
Eitt helsta kennileiti Zenica er áberandi gul kirkja. mbl.is/Jóhann Ingi

Hér fyrir neðan má sjá fleiri myndir sem ofanritaður tók á ferð sinni um Zenica, þar sem ævintýri íslenska karlalandsliðsins í undankeppni EM hefst.

Sum hverfi í Zenica þurfa á viðhaldi að halda.
Sum hverfi í Zenica þurfa á viðhaldi að halda. mbl.is/Jóhann Ingi
Hlýr marsdagur í Zenica.
Hlýr marsdagur í Zenica. mbl.is/Jóhann Ingi
Mengunin frá stálverksmiðjunni er mikil.
Mengunin frá stálverksmiðjunni er mikil. mbl.is/Jóhann Ingi
Ein helsta verslunargata Zenica.
Ein helsta verslunargata Zenica. mbl.is/Jóhann Ingi
Falleg fjöll eru umhverfis borgina.
Falleg fjöll eru umhverfis borgina. mbl.is/Jóhann Ingi
Inngangurinn um stærsta fangelsi gömlu Júgóslavíu.
Inngangurinn um stærsta fangelsi gömlu Júgóslavíu. mbl.is/Jóhann Ingi
Staupasteinn er vinsæll hjá íbúum Zenica.
Staupasteinn er vinsæll hjá íbúum Zenica. mbl.is/Jóhann Ingi
mbl.is/Jóhann Ingi
mbl.is/Jóhann Ingi
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert