KA Norðurlandsmeistari í sjötta sinn í röð

Norðurlandsmeistarar KA árið 2023.
Norðurlandsmeistarar KA árið 2023. Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir

KA vann Þór, 3:0, í úrslitaleiks Norðurlandsmóts karla í fótbolta, Kjarnafæðismótsins, í Boganum á Akureyri í gærkvöldi. 

Ásgeir Sigurgeirsson kom KA yfir í leiknum á 25. mínútu og Hallgrímur Mar Steingrímsson tvöfaldaði forystuna með marki beint úr aukaspyrnu þremur mínútum síðar.

Bróðir Hallgríms, Hrannar Björn Steingrímsson, skoraði svo þriðja mark KA í síðari hálfleik og gulltryggði sigurinn en Ragnar Óli Ragnarsson, leikmaður Þórs, fékk að líta beint rautt spjald á 84. mínútu.

Eins og áður kom fram er þetta sjötta árið í röð sem KA vinnur mótið. Síðasta liðið til að vinna mótið var Þór, eftir sigur á KA í úrslitaleik árið 2017.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert