Spáir því að Ísland komist ekki á EM

Leikmenn Íslands fagna marki gegn Liechtenstein í Vaduz.
Leikmenn Íslands fagna marki gegn Liechtenstein í Vaduz. Ljósmynd/Alex Nicodim

„Nei því miður,“ sagði Bjarni Helgason, íþróttablaðamaður á mbl.is og Morgunblaðinu, í Ísland vaknar á K100 þegar hann var spurður að því hvort íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu væri á leið í lokakeppni Evrópumótsins 2024 sem fram fer í Þýskalandi næsta sumar.

Ísland hóf leik í undankeppni EM á fimmtudaginn var þegar liðið tapaði fyrir Bosníu, 0:3, í Zenica í J-riðli undankeppninnar. 

Íslenska liðið vann svo 7:0-sigur gegn Liechtenstein í Vaduz í gær og er sem stendur í fjórða sæti riðilsins með þrjú stig, líkt og Bosnía og Slóvakía, en næsti leikur liðsins er gegn Slóvakíu á Laugardalsvelli þann 17. júní.

„Við erum bara ekki komnir þangað og mér finnst vanta meiri reynslu í þessa ungu gæja í þessum stærstu leikjum,“ sagði Bjarni.

„Það er geggjað fyrir þessa ungu stráka að fá Alfreð, Jóhann Berg, Aron Einar og Sverri Inga inn í þetta. Þeir kunna að vinna fótboltaleiki.

Það vantar hins vegar aðeins meira upp á,“ bætti Bjarni meðal annars við í samtali við K100 þegar rætt var um málefni karlalandsliðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert