Landsliðsfyrirliðinn fékk 10 í einkunn

Aron Einar Gunnarsson fagnar þrennunni ásamt liðsfélögum sínum.
Aron Einar Gunnarsson fagnar þrennunni ásamt liðsfélögum sínum. Ljósmynd/Alex Nicodim

Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson er í liði vikunnar hjá úrslitamiðlinum Sofascore fyrir frammistöðu sína með íslenska landsliðinu í knattspyrnu gegn Liechtenstein í J-riðli undankeppni EM 2024 á sunnudaginn síðasta.

Leiknum lauk með stórsigri íslenska liðsins, 7:0, en Aron Einar, sem lék sem miðvörður í leiknum, gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu.

Aron Einar fær 10 í einkunn hjá miðlinum og þá er Jón Dagur Þorsteinsson, kantmaður íslenska liðsins, einnig í liðinu en hann fékk 9,6 fyrir frammistöðu sína gegn Liechtenstein.

Næstu leikir íslenska liðsins fara fram í júní, þegar liðið fær Slóvakíu og Portúgal í heimsókn á Laugardalsvöll, en Ísland er með þrjú stig í þriðja sæti riðilsins eftir fyrstu tvær umferðir riðlakeppninnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert