Öruggur sigur í lokaleiknum

U16-ára landsliðið stillir sér upp fyrir leik gegn Armeníu á …
U16-ára landsliðið stillir sér upp fyrir leik gegn Armeníu á dögunum. Ljósmynd/KSÍ

Íslenska U16-ára landsliðið í knattspyrnu karla lauk leik á þróunarmóti Knattspyrnusambands Evrópu, UEFA, á Möltu með því að vinna heimamenn örugglega, 4:1, í gær.

Karl Ágúst Karlsson, Thomas Ari Arnarsson, Jónatan Guðni Arnarsson og Árni Veigar Árnason skoruðu mörk Íslands í leiknum.

Íslensku piltarnir léku þrjá leiki, unnu tvo þeirra og töpuðu einum.

5:2-sigur vannst á Armeníu í fyrsta leik og annar leikurinn, gegn Eistlandi, tapaðist 2:3. Alls skoraði íslenska liðið því 11 mörk í leikjunum þremur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert