Fyrir íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu er aðallega heiðurinn í húfi þegar það mætir Portúgal í lokaleiknum í undankeppni EM í kvöld en örlög Íslands varðandi sæti í umspilinu ráðast af úrslitum lykilleikja annarra riðla í dag, mánudag og þriðjudag.
Fimmtán lið eru komin á EM, auk gestgjafa Þýskalands, en fimm sæti verða útkljáð í lokaumferðunum. Staðan í riðlunum er þannig:
A-riðill: Spánn og Skotland á EM.
B-riðill: Frakkland og Holland á EM.
C-riðill: England á EM, Úkraína og Ítalía mætast í úrslitaleik annað kvöld og Ítölum nægir jafntefli.
D-riðill: Tyrkland á EM. Króatía fer áfram með sigri á Armeníu heima á þriðjudagskvöld, annars getur Wales farið áfram með því að sigra Tyrkland.
E-riðill: Albanía á EM. Tékkland og Moldóva mætast í úrslitaleik annað kvöld og Tékkum nægir jafntefli.
F-riðill: Austurríki og Belgía á EM.
G-riðill: Ungverjaland á EM. Serbíu nægir jafntefli gegn Búlgaríu í dag, annars kæmist Svartfjallaland áfram með útisigri gegn Ungverjalandi.
H-riðill: Danmörk á EM. Slóvenía og Kasakstan mætast í úrslitaleik annað kvöld og Slóvenum nægir jafntefli.
I-riðill: Rúmenía og Sviss á EM.
J-riðill: Portúgal og Slóvakía á EM.
Leikirnir sem skipta Ísland mestu máli eru Serbía - Búlgaría og Ungverjaland - Svartfjallaland í dag, Úkraína - Ítalía og Tékkland - Moldóva annað kvöld.
Ef Serbar tryggja sér sæti á EM í dag er staða Íslands mjög vænleg en framhaldið mun þó aldrei ráðast að fullu fyrr en annað kvöld. Ísland gæti þá enn dottið út ef Moldóva myndi vinna Tékkland og Ítalía færi áfram á kostnað Úkraínu.
Ef Svartfjallaland kæmist hins vegar á EM í dag og Serbar þyrftu að fara í umspilið myndi Ísland detta út ef Úkraína vinnur Ítalíu og Moldóva vinnur Tékkland.
Fari bæði Serbar og Tékkar á EM, eins og líklegt má teljast, er Ísland öruggt í umspilið.
Ísland kemst ekki í umspilið ef Svartfjallaland, Tékkland og Ítalía fara áfram.
Ísland kemst ekki í umspilið ef Svartfjallaland, Úkraína og Moldóva fara áfram.
Ísland kemst ekki í umspilið ef Serbía, Moldóva og Ítalía fara áfram.
Komist Ísland í umspilið eru tveir möguleikar í boði, eftir því hvernig önnur lið raðast inn á EM og í umspilið.
Ísland gæti farið í A-umspilið og mætt Wales eða Póllandi í undanúrslitum á útivelli. Það gerist ef Serbía, Tékkland og Ítalía fara öll áfram.
Ísland gæti farið í B-umspilið og mætt Ísrael í undanúrslitum á útivelli. Það gerist ef Serbía, Tékkland og Úkraína fara öll áfram, líka ef Serbía, Moldóva og Úkraína fara öll áfram.
Sjö lið eru örugg með sæti í tólf liða umspilinu en þar verða fjögur lið í hverjum riðli og þau raðast í riðlana samkvæmt árangri í síðustu Þjóðadeild.
Umspil A: Pólland.
Umspil B: Ísrael, Bosnía, Finnland (gæti færst upp í A)
Umspil C: Georgía, Grikkland, Lúxemborg
Liðin sem fara í umspil ef þau fara ekki beint á EM: Króatía (A), Ítalía (A), Tékkland (A), Wales (A), Serbía (B), Úkraína (A/B), Kasakstan (C).
Önnur lið sem geta komist í umspil: Ísland (A/B), Aserbaídsjan (C), Eistland (A).
Í umspilinu í mars verður leikið um þrjú síðustu sætin á EM og þangað fara sigurvegarar úr A-, B- og C-riðlum.