Sandra María Jessen, fyrirliði Þórs/KA, varð á laugardaginn fimmtánda konan í sögu Íslandsmótsins í knattspyrnu til að skora 100 mörk í efstu deild kvenna.
Sandra skoraði mörk númer 100 og 101 í deildinni þegar Þór/KA vann öruggan sigur á Stjörnunni í Garðabæ, 4:1, en hún hefur leikið 161 leik í deildinni, alla fyrir Akureyrarliðið.
Þessar fimmtán konur hafa skorað 100 mörk og meira:
269 Olga Færseth
207 Margrét Lára Viðarsdóttir
181 Harpa Þorsteinsdóttir
154 Ásta B. Gunnlaugsdóttir
154 Helena Ólafsdóttir
148 Hrefna Jóhannesdóttir
138 Laufey Sigurðardóttir
137 Berglind Björg Þorvaldsdóttir
134 Ásthildur Helgadóttir
134 Elín Metta Jensen
125 Hólmfríður Magnúsdóttir
125 Rakel Hönnudóttir
118 Fanndís Friðriksdóttir
104 Kristín Ýr Bjarnadóttir
101 Sandra María Jessen
Agla María Albertsdóttir úr Breiðabliki lék sinn 150. leik í efstu deild í gær þegar Blikar unnu Þrótt 3:0. Af þeim hefur hún leikið 108 leiki fyrir Breiðablik, 34 fyrir Stjörnuna og 8 fyrir Val. Þá skoraði Agla María sitt 77. mark í leiknum og fór með því upp fyrir Bryndísi Jóhannesdóttur, sem lengst af lék með ÍBV, og í 28. sætið yfir markahæstu leikmenn deildarinnar frá upphafi.
Barbára Sól Gísladóttir úr Breiðabliki lék um leið sinn 100. leik í deildinni. Af þeim eru 92 fyrir Selfoss og svo átta fyrir Breiðablik á þessu tímabili.
Hrefna Jónsdóttir úr Stjörnunni og Hildur Anna Birgisdóttir úr Þór/KA skoruðu báðar sitt fyrsta mark í efstu deild þegar liðin mættust á laugardaginn. Hrefna lék sinn 11. leik og Hildur sinn sjötta. Þá skoraði Abigail Boyan úr Fylki sitt fyrsta mark í deildinni gegn Val í gær, í sínum áttunda leik.
Úrslitin í 8. umferð:
FH - Keflavík 1:0
Stjarnan - Þór/KA 1:4
Breiðablik - Þróttur R. 3:0
Fylkir - Valur 1:4
Tindastóll - Víkingur R. 1:1
Markahæstar:
12 Sandra María Jessen, Þór/KA
7 Agla María Albertsdóttir, Breiðabliki
7 Vigdís Lilja Kristjánsdóttir, Breiðabliki
5 Amanda Andradóttir, Val
5 Andrea Rut Bjarnadóttir, Breiðabliki
5 Ísabella Sara Tryggvadóttir, Val
4 Eva Rut Ásþórsdóttir, Fylki
4 Hafdís Bára Höskuldsdóttir, Víkingi
4 Jasmín Erla Ingadóttir, Val
4 Kristrún Rut Antonsdóttir, Þrótti
4 Snædís María Jörundsdóttir, FH
3 Birta Georgsdóttir, Breiðabliki
3 Breukelen Woodard, FH
3 Fanndís Friðriksdóttir, Val
3 Guðrún Elísabet Björgvinsdóttir, Val
3 Hannah Sharts, Stjörnunni
3 Jordyn Rhodes, Tindastóli
3 Sigdís Eva Bárðardóttir, Víkingi
Næstu leikir:
20.6. Víkingur R. - Breiðablik
21.6. Keflavík - Tindastóll
21.6. Þór/KA - Fylkir
21.6. Þróttur R. - Stjarnan
21.6. Valur - FH