Víkingur gæti farið til Bosníu eða Albaníu

Víkingar gætu farið til Bosníu eða Albaníu.
Víkingar gætu farið til Bosníu eða Albaníu. mbl.is/Óttar Geirsson

Víkingur úr Reykjavík mætir Borac Banja Luka frá Bosníu eða Egnatia frá Albaníu í 2. umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar ef liðið tapar fyrir Shamrock Rovers í 1. umferð undankeppni Meistaradeildarinnar. 

Víkingur mætir Sparta Prag í 2. umferð undankeppni Meistaradeildarinnar ef liðið vinnur írsku meistarana Shamrock Rovers. 

Annars leikur Víkingsliðið gegn tapliðinu í viðureign Borac og Egnatia.

Breiðablik, Stjarnan og Valur munu þá öll vita sína mótherja í 2. umferð, ef þau vinna í 1. umferð, innan skamms.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert