„Satt að segja er ég alltaf smá stressuð fyrir hverjum einasta landsleik.“ sagði landsliðskonan Hlín Eiríksdóttir sem hefur spilað 38 leiki með íslenska landsliðinu.
Ísland mætir Þýskalandi í undankeppni EM í fótbolta á föstudaginn. Liðin hafa mæst þrisvar síðan í september og Ísland hefur tapað þeim öllum.
„Ég hlakka ógeðslega mikið til að spila á föstudaginn, held það sé kominn tími til þess að við náum í stig á móti Þýskalandi og föstudagurinn flottur dagur til þess að gera það
Þær eru sterkar og góðar í fótbolta en við höfum sýnt að við getum spilað góðan fótbolta á móti þeim og getum staðið í þeim. Við þurfum bara fjölga þeim mínútum í leikjunum og þá getur allt gerst á föstudaginn,“ sagði Hlín í viðtali við mbl.is í dag.
Ísland mætir Póllandi á útivelli í næstu viku sem er líklegast auðveldari leikur til þess að sækja þrjú stig úr en Hlín segir ekkert mál að stilla sig á einn leik í einu.
„Þýskalandsleikurinn er næsti leikur og maður er vanur því sem leikmaður að hugsa bara um næsta leik.
Það er leikur en svo er kannski annar leikur á eftir því sem einhverjum finnst meira spennandi en maður einbeitir sér bara að næsta leik.“
Það er sæti á Evrópumóti undir í þessum landsleikjaglugga en Hlín er ekkert meira stressuð en vanalega.
„Mér finnst ennþá sjúkur heiður að spila með landsliðinu svo það er alltaf smá taugar en ekkert sem er að fara að trufla.“
Hlín skoraði í síðasta leik gegn Þýskalandi sem var á útivelli í 3:1 tapi.
Ákveðin í að skora aftur?
„Já algjörlega.“
Hlín spilar með Kristianstad í sænsku úrvalsdeildinni og hefur staðið sig vel þar og raðar inn mörkum og stoðsendingum.
„Ef maður er með gott sjálfstraust þá er maður með sjálfstraust. Ég er með gott sjálfstraust akkúrat núna og ætla að taka það með inn í þetta verkefni og ætla að gera mitt allra besta fyrir liðið.“