Aron samdi við Þór - stefnir erlendis í haust

Aron Einar Gunnarsson og Sigurður Heiðar Höskuldsson þjálfari Þórs á …
Aron Einar Gunnarsson og Sigurður Heiðar Höskuldsson þjálfari Þórs á fréttamannafundinum í dag. Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir

Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyrirliði Íslands í knattspyrnu um árabil, skrifaði í dag undir tveggja ára samning við uppeldisfélag sitt, Þór á Akureyri.

Hann mun væntanlega leika með liðinu í ágústmánuði en sagði á fréttamannafundi Þórs að hann hefði áhuga á að leika erlendis í vetur, til að eiga möguleika á að spila á ný með landsliði Íslands, en þá þyrfti hann að fara eitthvert á lán fyrir 1. september.

Margir stuðningsmenn Þórs tóku á móti Aroni í Hamri, félagsheimili félagsins, sem var kynntur til leiks á fréttamannafundinum klukkan 17.

Aron er búinn að vera lengi fjarverandi vegna meiðsla. Hann spilaði ekkert með Al-Arabi í Katar tímabilið 2023-24 og síðasti leikur hans var landsleikur Slóvakíu og Íslands í Bratislava 16. nóvember 2023.

Aron Einar Gunnarsson fékk góðar móttökur í Hamri í dag.
Aron Einar Gunnarsson fékk góðar móttökur í Hamri í dag. Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir
Aron Einar Gunnarsson í leik með Þór gegn KA árið …
Aron Einar Gunnarsson í leik með Þór gegn KA árið 2006 en það ár fór hann í atvinnumennsku til Hollands. Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir
Aron Einar Gunnarsson í einum af 103 landsleikjum sínum en …
Aron Einar Gunnarsson í einum af 103 landsleikjum sínum en hann er í 3.-4. sæti yfir leikjahæstu landsliðsmenn Íslands og sá sem oftast hefur verið fyrirliði landsliðsins. Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert