Jóhanna nýr framkvæmdastjóri Vals

Jóhanna Gunnlaugsdóttir.
Jóhanna Gunnlaugsdóttir. Ljósmynd/Valur

Knattspyrnufélagið Valur tilkynnti í dag að Jóhanna Gunnlaugsdóttir mun taka við sem framkvæmdastjóri félagsins á næsta ári.

Styrmir Þór Bragason tók við starfinu í febrúar á þessu ári en Jóhanna tekur við af honum 1. janúar næstkomandi.

„Ég er þakklát fyrir það traust sem mér er sýnt að taka við jafn sterku íþróttafélagi og Valur er, með 113 ára sögu í íslensku íþróttasamfélagi. Hlíðarendi er einstakur staður, og ég hlakka til að vinna með því frábæra starfsfólki, stjórnum, sjálfboðaliðum, foreldrum og iðkendum sem fylla húsið alla daga. Ég tel að okkur beri skylda til þess að bjóða börnum og unglingum upp á öruggan stað til þess að vaxa og dafna á sem einstaklingar, ekki bara sem íþróttafólk. Það eru spennandi tímar framundan hjá okkur, og ég hlakka til að vinna að áframhaldandi uppbyggingu og vexti þessa framsækna félags,“ sagði Jóhanna í tilkynningu frá félaginu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert