Ari samdi við Elfsborg

Ari Sigurpálsson er genginn til liðs við Elfsborg.
Ari Sigurpálsson er genginn til liðs við Elfsborg. Ljósmynd/Elfsborg

Knattspyrnumaðurinn Ari Sigurpálsson er genginn til liðs við sænska úrvalsdeildarfélagið Elfsborg frá Víkingi úr Reykjavík. Skrifaði hann undir fimm ára samning sem gildir út tímabilið 2029.

Ari er 22 ára kantmaður sem Elfsborg kaupir af Víkingi, þar sem hann hefur leikið frá árinu 2022. Þaðan kom Ari frá Bologna á Ítalíu en hóf meistaraflokksferilinn ungur að árum hjá uppeldisfélaginu HK.

Hjá Elfsborg hittir hann fyrir einn Íslending, miðjumanninn Júlíus Magnússon sem kom frá norsku bikarmeisturunum í Fredrikstad í lok síðasta árs. Þeir léku saman hjá Víkingi sumarið 2022.

Ari hefur skorað 19 mörk í 75 leikjum í efstu deild á Íslandi, þar af 65 leiki og 18 mörk fyrir Víking. Hann skoraði þá þrjú mörk í átta leikjum í deildar- og útsláttarkeppni Sambandsdeildarinnar og vakti fyrir vikið mikla athygli erlendra félaga. Ari á að baki 9 leiki með 21-árs landsliði Íslands og 27 leiki með yngri landsliðunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert