Valur er Meistari meistaranna

Elísa Viðarsdóttir hefur bikarinn á loft í kvöld.
Elísa Viðarsdóttir hefur bikarinn á loft í kvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Valur hafði betur gegn Breiðabliki, 1:0, í leiknum um Meistara meistaranna í knattspyrnu kvenna á Kópavogsvelli í kvöld.

Valur varð bikarmeistari á síðasta tímabili eftir sigur á Breiðabliki í úrslitaleik á meðan Breiðablik varð Íslandsmeistari eftir að hafa skákað Val í kjölfar æsispennandi toppbaráttu.

Sigurmarkið í kvöld kom á 27. mínútu. Það skoraði Jasmín Erla Ingadóttir þegar hún fylgdi eftir skoti Fanndísar Friðriksdóttur sem Katherine Devine hafði varið út í vítateiginn.

Barbára Sól Gísladóttir og Jasmín Erla Ingadóttir eigast við í …
Barbára Sól Gísladóttir og Jasmín Erla Ingadóttir eigast við í kvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert