1. umferð: Tvær Berglindir á tímamótum og sögulegt hjá Blikum

Berglind Björg Þorvaldsdóttir er strax byrjuð að skora á ný …
Berglind Björg Þorvaldsdóttir er strax byrjuð að skora á ný fyrir Breiðablik. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tvær Berglindir náðu stórum áföngum í fyrstu umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta og Breiðablik náði tímamótaárangri strax í fyrstu umferðinni.

Berglind Björg Þorvaldsdóttir skoraði tvö marka Breiðabliks í stórsigri á Stjörnunni, 6:1, og þar með hefur hún skorað 160 deildamörk á ferlinum. Þar af eru 143 mörk í efstu deild á Íslandi, þar sem hún er sjöunda markahæst frá upphafi og markahæst af núverandi leikmönnum deildarinnar, og þá hefur Berglind skorað 17 mörk til viðbótar í efstu deildum Ítalíu, Frakklands, Hollands, Svíþjóðar og Noregs.

Berglind Björg er næstmarkahæst í sögu Breiðabliks í efstu deild með 107 mörk, næst á eftir Ástu B. Gunnlaugsdóttur sem skoraði 154 mörk í 143 leikjum á sínum tíma. 

Berglind Rós Ágústsdóttir hefur spilað 200 deildaleiki.
Berglind Rós Ágústsdóttir hefur spilað 200 deildaleiki. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Berglind Rós Ágústsdóttir lék sinn 200. deildaleik á ferlinum þegar Valur gerði markalaust jafntefli við FH á Hlíðarenda í gærkvöld. Þar af eru 139 leikir með Val, Aftureldingu og Fylki á Íslandi, 48 með Örebro í Svíþjóð og 13 með Huelva á Spáni.

500 sigurleikir Breiðabliks

Fyrir Breiðablik var sigurinn gegn Stjörnunni sögulegur því þetta er 500. sigur félagsins í 717 leikjum í deildakeppni Íslandsmótsins og er Breiðablik fyrsta félagið til að ná þeim áfanga. Þar af eru 493 sigurleikir í efstu deild og sjö sigrar í næstefstu deild eina árið sem Breiðablik lék þar, 1988. Valur er í öðru sæti með 482 sigurleiki og KR í þriðja sæti með 350 sigra.

Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir lék sinn 150. leik í deildinni þegar Víkingur tapaði fyrir Þór/KA, 4:1, á Víkingsvellinum í gærkvöld. Þetta var sá fyrsti fyrir Víking en Þórdís hefur áður leikið með Breiðabliki, Stjörnunni, Þór/KA, KR og Val í deildinni. Flestir leikjanna eru fyrir Breiðablik, 66 talsins.

Murielle Tiernan og Sæunn Björnsdóttir eigast við í leik Þróttar …
Murielle Tiernan og Sæunn Björnsdóttir eigast við í leik Þróttar og Fram þar sem Murielle skoraði mark Framara. mbl.is/Eyþór Árnason

Murielle Tiernan skoraði fyrsta mark Fram í efstu deild í 37 ár þegar liðið tapaði 3:1 fyrir Þrótti. Síðust á undan henni til að skora fyrir félagið í deildinni var Brynhildur Þórarinsdóttir sem skoraði seinna markið í 2:0 sigri á ÍBÍ frá Ísafirði 12. ágúst árið 1988.

Fram lék 57 leiki í efstu deild á árunum 1972 til 1988 og náði tvisvar öðru sæti, árin 1975 og 1977. Eftir að liðið féll haustið 1988 var það lagt niður, endurvakið í eitt ár, 1993, en svo ekki aftur fyrr en árið 2010.

Ellefu nýliðar með nýja liðinu

Austfjarðaliðið FHL lék sinn fyrsta leik í efstu deild þegar það tapaði 1:0 fyrir Tindastóli á Sauðárkróki í gærkvöld. Eitt aðildarfélaga FHL, Höttur, lék síðast Austurlandsliða í deildinni árið 1994.

Af þeim þrettán leikmönnum sem FHL notaði í leiknum á Króknum höfðu aðeins tvær spilað áður leik í efstu deild. Mikaela Nótt Pétursdóttir lék sinn 34. leik í deildinni og María Björg Fjölnisdóttir sinn 20. leik.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert