ÍBV fór illa með Víkinga

Daníel Hafsteinsson í deildarleik liðanna á dögunum.
Daníel Hafsteinsson í deildarleik liðanna á dögunum. Ljósmynd/Kristinn Steinn

ÍBV gerði sér lítið fyrir og sigraði Víking, 3:0, á heimavelli í 32-liða úrslitum bikarkeppni karla í fótbolta í Vestmannaeyjum í dag. 

Eyjamenn fengu hættulegri færi í fyrri hálfleik en gekk illa að skapa sér opin færi. Víkingar sköpuðu sér lítið og var staðan í hálfleik því markalaus.

Það breyttist á 47. mínútu er Omar Sowe skoraði eftir góðan samleik við Oliver Heiðarsson. Sowe afgreiddi boltann vel í bláhornið úr teignum eftir sendingu frá Oliver.

Oliver átti einnig þátt í öðru markinu á 54. mínútu en það gerði Alex Freyr Hilmarsson með góðu skoti úr teignum eftir sendingu frá Oliver.

Eyjamenn voru ekki hættir því Sowe gerði sitt annað mark og þriðja mark ÍBV á 69. mínútu með skalla af stuttu færi eftir fyrirgjöf frá Alex.

ÍBV fær kjörið tækifæri til að skora fjórða markið á 85. mínútu en Bjarki Björn Gunnarsson skaut framhjá úr víti og urðu mörkin því ekki fleiri.

ÍBV 3:0 Víkingur R. opna loka
90. mín. Stígur Diljan Þórðarson (Víkingur R.) fer af velli
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert