Bestur í annarri umferð

Guðmundur Baldvin Nökkvason í baráttu gegn FH í Bestu deildinni.
Guðmundur Baldvin Nökkvason í baráttu gegn FH í Bestu deildinni. mbl.is/Ólafur Árdal

Guðmundur Baldvin Nökkvason, miðjumaður Stjörnunnar, var besti leikmaðurinn í annarri umferð Bestu deildar karla í fótbolta að mati Morgunblaðsins.

Guðmundur átti góðan leik þegar Garðabæjarliðið vann ÍA, 2:1, í hörkuleik á mánudagskvöldið. Hann lagði upp fyrra markið með því að skalla boltann á Andra Rúnar Bjarnason og skoraði svo sigurmarkið snemma í síðari hálfleik, einmitt eftir sendingu frá Andra Rúnari. Hann fékk tvö M hjá Morgunblaðinu fyrir frammistöðu sína.

Guðmundur Baldvin er uppalinn Stjörnumaður og verður 21 árs síðar í þessum mánuði. Hann spilaði sína fyrstu leiki í efstu deild árið 2021 og á nú að baki 55 leiki með liðinu í deildinni og hefur skorað í þeim 11 mörk.

Hann fór til sænska félagsins Mjällby í ágúst 2023 og spilaði með því sjö leiki í sænsku úrvalsdeildinni, þar sem hann skoraði eitt mark, en sneri síðan aftur til Stjörnunnar fyrir tímabilið 2024.

Guðmundur á að baki átta leiki með U19 ára landsliði Íslands og er í 21-árs landsliðinu, en hann lék með því í sigurleikjunum gegn Ungverjalandi og Skotlandi í febrúar og hafði áður spilað tvo aðra vináttuleiki í þessum aldursflokki.

Þeir Guðmundur og Andri eru báðir í liði 2. umferðar sem sjá má í miðvikudagsblaði Morgunblaðsins en Fram, Víkingur og Vestri eiga líka tvo leikmenn hvert félag í liðinu.

Enginn leikmaður hefur verið í liði vikunnar í báðum tveimur fyrstu umferðum deildarinnar.

Lið annarar umferðar má sjá í Morgunblaðinu síðasta miðvikudag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert