Þór/KA á toppnum eftir baráttusigur

Sandra María Jessen skorar í leik liðanna á síðasta tímabili.
Sandra María Jessen skorar í leik liðanna á síðasta tímabili. Ljósmynd/Jóhann Helgi Sigmarsson

Norðanliðin Þór/KA og Tindastóll áttust við í 2. umferð Bestu-deildar kvenna í dag og vann Þór/KA 2:1 í bráðskemmtilegum leik. Akureyringar eru sem stendur í toppsætinu með fullt hús stiga en Tindastóll er með þrjú stig.

Tindastóll komst yfir mjög snemma, eða strax á 5. mínútu. Makala Woods afgreiddi boltann í netið eftir aukaspyrnu og smá hamagang í vítateig Akureyringa. Skömmu síðar fékk Makala annað gott færi en hún hitti ekki markið eftir að hafa leikið fram hjá Jessicu Berlin, markverði Þórs/KA.

Annars voru það heimakonur sem voru að skapa mun fleiri færi en þeim bara tókst ekki að skora í fyrri hálfleiknum. Bríet Fjóla Bjarnadóttir hitti m.a. ekki boltann í algjöru dauðafæri og um miðjan hálfleikinn bjargaði leikmaður Tindastóls á línu. Sandra María var búin að senda boltann yfir Geveviene Crenshaw en Laufey Harpa Halldórsdóttir náði að skalla boltann frá markinu. Staðan því 1:0 í hálfleik fyrir Tindastól. 

Makala hélt áfram að hrella varnarmenn Þórs/KA í seinni hálfleiknum. Hún brenndi af besta færi leiksins snemma í honum en skömmu síðar lá boltinn í neti Tindastólskvenna. Það var Karen María Sigurgeirsdóttir sem jafnaði leikinn. Hún smurði boltanum upp í skeytin eftir hamagang í teig Skagfirðinga. Skömmu áður hafði hún þrumað boltanum í stöngina.

Eftir markið sóttu heimakonur ákaft og Tindastóll átti í vök að verjast. Lokakaflinn var svo stál í stál þar sem hvort lið gat tryggt sér sigur. Bríet Jóhannsdóttir skoraði sigurmark Þórs/KA undir lok leiksins. Hún átti skot af vítateigshorninu vinstra megin og boltinn fór í bláhorn marksins hægra megin.

Ekki var allt búið enn því Tindastóll fékk færi á að jafna en tókst ekki að skora.

Þór/KA 2:1 Tindastóll opna loka
90. mín. Hulda Ósk Jónsdóttir (Þór/KA) fer af velli
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert