Valur lagði FHL, 2:0, í 2. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta. Þetta var fyrsti leikur FHL í Fjarðabyggðarhöllinni á Reyðarfirði í efstu deild og fjölmennt var í stúkunni en það dugði ekki til.
FHL er stigalaust eftir fyrstu tvo leikina en Valur er kominn með fjögur stig eftir sigurinn og kom sér í annað sæti deildarinnar í lok leiks.
Gestirnir voru mun hættulegri í fyrri hálfleik og náðu strax forystunni á 8. mínútu þegar varnarmaðurinn Natasha Anasi skallaði boltann í fjærhornið eftir hornspyrnu frá Önnu Rakel Pétursdóttur.
Valur bætti forystuna á 22. mínútu þegar Valur fékk hraða sókn eftir aukaspyrnu hjá FHL. Berglind Rós Ágústsdóttir hljóp upp með boltann og sendi svo Jasmín Erlu Ingudóttir í gegn sem lék á markmann FHL og skoraði í autt netið.
Mikið var um færi og leikurinn færðist á báða boga. Jordyn Rhodes fékk tækifæri til að setja þriðja mark Vals en boltinn fór í þverslána. Ekki komu fleiri mörk í fyrri hálfleik og því staðan eftir fyrri hálfleik, 2:0 fyrir Val.
Bæði lið fengu færi til að skora og á 55. mínútu fékk Björg Gunnlaugsdóttir boltann í gegn eftir sendingu frá Aida Kardovic en lyfti boltanum rétt framhjá. FHL náði engu svari við vörn Vals og enduðu leikar því 2:0 eftir 90 mínútur.