„Yfir það heila voru þær betri,“ sagði Heiða Ragney Viðarsdóttir, miðjumaður Breiðabliks, eftir að liðið bjargaði stigi gegn Þrótti úr Reykjavík í Bestu deildinni í knattspyrnu í kvöld.
Leiknum lauk með 2:2 jafntefli eftir að Blikar jöfnuðu metin í uppbótartíma.
„Þær voru miklu betur skipulagðar, vissu hvar þær áttu að finna götin í kerfinu okkar en þvílík endurkoma að knýja fram jafntefli á síðustu 10-15 mínútunum.
Maður getur ekki verið annað en sáttur við jafntefli miðað við hvernig leikurinn spilaðist,“ sagði Heiða Ragney í samtali við mbl.is eftir leikinn.
Þróttur var með undirtökin stóran hluta leiks og réði ferðinni alfarið í fyrri hálfleik. Blikar léku betur í síðari hálfleik og skoruðu tvö mörk, þar á meðal Heiða Ragney.
Hvað olli því að Þróttur stýrði ferðinni á löngum köflum?
„Ég veit það ekki. Stundum spilast hlutirnir svona og við vorum ekki að ná að bregðast við. Við vorum allt of langt frá leikmönnum og greinilega ekki nógu tilbúnar. Hausinn var ekki alveg með okkur í fyrri hálfleik,“ útskýrði hún.
Heiða Ragney sagði það til marks um mikinn andlegan styrk hjá Breiðabliki að ná að koma til baka eftir að hafa lent tveimur mörkum undir og hrósaði sérstaklega ungum leikmönnum liðsins sem komu inn á sem varamenn seint í leiknum.
„Algjörlega, og líka skiptingarnar. Að fá þessar lillur inn á til að sprengja og spæna í gegnum allt. Það er frábært að hafa svona leikmenn á bekknum. Mikið hrós til ungu leikmannanna okkar í dag.“
Hún er varnartengiliður og skorar því ekki sérlega oft en minnkaði muninn í 2:1 á 80. mínútu í kvöld með sínu fyrsta deildarmarki fyrir Breiðablik.
„Ég sá að Líf [Joostdóttir van Bemmel] var í einhverju ójafnvægi þarna þannig að ég var tilbúin að fá boltann þegar hann rann í gegn. Ég hafði nægan tíma þannig að ég tók bara snertingu og negldi. Ég var rétt manneskja á réttum stað. Maður verður einhvern tímann að láta ljós sitt skína!“ sagði Heiða Ragney og hló.
Íslandsmeistarar Breiðabliks eru með fjögur stig eftir fyrstu tvær umferðirnar og líst henni vel á framhaldið.
„Ég er bjartsýn. Við vissum það alveg fyrir þennan leik að þetta yrði smá prófraun að koma hingað, að koma á Þróttarvöllinn. Þær eru með gott lið og búnar að bæta í frá því í fyrra.
Kannski er þetta líka ágætis spark í rassinn, að við þurfum kannski að mæta aðeins betur í leiki ef við ætlum að taka þennan titil. En þetta er rétt að byrja, það er ekkert svo slæmt að gera jafntefli,“ sagði Heiða Ragney að endingu.