Eitt er betra en ekkert

Leikmenn Þróttar fagna marki í kvöldi. Freyja Karín Þorvarðardóttir (nr. …
Leikmenn Þróttar fagna marki í kvöldi. Freyja Karín Þorvarðardóttir (nr. 9) er fyrir miðju. mbl.is/Karítas

„Já, það er svekkjandi að missa þetta niður,“ sagði Freyja Karín Þorvarðardóttir, kantmaður Þróttar úr Reykjavík, eftir að liðið glutraði niður tveggja marka forskoti í 2:2 jafntefli gegn Íslandsmeisturum Breiðabliks í Bestu deildinni í knattspyrnu í kvöld.

„Við hefðum í rauninni átt að klára þetta í fyrri hálfleik, eða í raun í báðum hálfleikjum. Við fengum góð færi og þetta er eitthvað sem við verðum að gera betur, að klára þessi færi til þess að klára leikina,“ sagði Freyja Karín í samtali við mbl.is eftir leik.

Þróttur stýrði ferðinni stóran hluta leiksins í kvöld en góður kafli Breiðabliks seint í leiknum skilaði tveimur mörkum og þar með jafntefli.

Hvað gerðist hjá Þrótti síðustu 10-15 mínúturnar?

„Við kannski missum aðeins fókus í eina mínútu og þá bara refsa þær okkur fyrir það. Þetta er eitthvað sem við verðum að æfa okkur í, að halda fókus út alla leiki,“ útskýrði hún.

Fannst við betri aðilinn

Freyja Karín var atgangshörð við mark Breiðabliks en inn vildi boltinn ekki hjá henni þrátt fyrir nokkur góð færi. Freyja Karín tekur þó ýmislegt jákvætt út úr leiknum þar sem Þróttur stýrði ferðinni lengi vel gegn Íslandsmeisturunum.

„Nákvæmlega, við stjórnuðum leiknum og áttum alveg fyrri hálfleikinn. En þetta er gott stig, eitt er betra en ekkert. Við hefðum samt viljað fá þrjú stig út úr þessu því mér fannst við betri aðilinn í þessum leik.“

Þróttur er með fjögur stig eftir fyrstu tvær umferðirnar og er hún bjartsýn á gott gengi liðsins á tímabilinu.

„Ég er virkilega bjartsýn. Við erum með góðan hóp og góða einstaklinga. Ég er ótrúlega spennt fyrir þessu tímabili.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert