Þróttur úr Reykjavík og Íslandsmeistarar Breiðabliks skildu jafnir, 2:2, ístórleik annarrar umferðar deildarinnar á Þróttarvelli í Laugardal í kvöld. Þróttur komst í 2:0 en Breiðablik jafnaði metin í uppbótartíma.
Breiðablik er í öðru sæti með fjögur stig og Þróttur er sæti neðar með jafnmörg stig.
Berglind Björg Þorvaldsdóttir fékk fyrsta færi leiksins á áttundu mínútu þegar viðstöðulaust skot hennar á lofti af stuttu færi eftir fyrirgjöf Samönthu Smith frá hægri fór framhjá markinu.
Skömmu síðar fékk Þróttur dæmda vítaspyrnu. Þórdís Elva Ágústsdóttir tók þá skot fyrir utan vítateig sem fór beint í hönd Samönthu innan vítateigs. Blikar mótmæltu þar sem Kristín Dís Árnadóttir lá óvíg í eigin vítateig stuttu áður en Þórdís Elva skaut en dómnum var ekki haggað.
Katie Cousins steig á vítapunktinn og skoraði með skoti upp í hægra hornið. Katherine Devine í marki Breiðabliks var með hendur í boltanum en tókst ekki að halda honum úti. Staðan því orðin 1:0 og Blikar virtust slegnir.
Uppspil gestanna gekk hægt og illa og engin voru færin á meðan Þróttur virtist líklegra til að bæta við enda ofan á í öllum sínum aðgerðum. Blikar áttu sérstaklega í erfiðleikum með hápressu Þróttara sem unnu boltann oft framarlega á vellinum.
Kristín Dís átti loks fína tilraun fyrir Breiðablik á 35. mínútu í kjölfar hornspyrnu en skotið fyrir utan vítateig hafnaði í varnarmanni Þróttar.
Undir lok fyrri hálfleiksins hótaði Freyja Karín Þorvarðadóttir því nokkrum sinnum að tvöfalda forskot Þróttar. Á 42. mínútu komst hún ein gegn Katherine vinstra megin í vítateignum eftir stungusendingu Katie en Katherine varði skot Freyju Karínar vel með fótunum.
Mínútu síðar datt boltinn fyrir hana í vítateignum eftir að Katherine sló fyrirgjöf Mistar Funadóttur frá vinstri út, Freyja Karín náði skoti en Kristín Dís bjargaði rétt fyrir framan marklínu og rangstaða var svo dæmd á Caroline Murray.
Í uppbótartíma fyrri hálfleiks var Freyja Karín enn að banka á dyrnar, náði ekki skoti í vítateignum en boltinn barst út til Mistar sem náði skoti úr teignum en fór í þverslána og yfir markið.
Þróttur var því með verðskuldaða eins marks forystu, sem hefði hæglega getað verið meiri, þegar flautað var til leikhlés.
Blikar hófu síðari hálfleikinn betur en ekki leið á löngu þar til Berglind Björg sendi Öglu Maríu eina í gegn en skot hennar vinstra megin úr vítateignum fór framhjá markinu.
Skömmu síðar reyndi Samantha fast skot fyrir utan vítateig en það fór beint á Mollee Swift í marki Þróttar.
Eftir klukkutíma leik var Freyja Karín einu sinni sem áður aðgangshörð. Caroline átti þá fasta fyrirgjöf af hægri kantinum, Freyja Karín náði skallanum af stuttu færi á fjærstönginni en undir mikilli pressu Helgu Rutar Einarsdóttir og skallinn fór framhjá markinu.
Fimm mínútum síðari slapp Agla María í gegn hægra megin í vítateignum, tók skotið á nærstöngina en boltinn hafnaði í stönginni. Birta Georgsdóttir fylgdi skotinu eftir vinstra megin úr teignum en Mollee varði frá henni.
Strax í næstu sókn fékk Freyja Karín annað skallafæri vinstra megin í vítateignum en skallinn var nokkuð laus og beint á Katherin sem greip boltann.
Skömmu síðar, á 68. mínútu, átti Katie glæsilegt rétt fyrir utan vítateigs sem virtist stefna upp í samskeytin en fór rétt framhjá.
Tveimur mínútum síðar átti Freyja Karín laglega fyrirgjöf af vinstri kantinum, Caroline náði til boltans og lagði hann fyrir Unni Dóru Bergsdóttur sem var ein á auðum sjó við markteiginn.
Þegar tæpur stundarfjórðungur var til leiksloka tvöfaldaði Þróttur forystuna. Katie tók þá hornspyrnu frá hægri, Katherine misreiknaði boltann og missti af honum með þeim afleiðingum að hann fór í Samönthu og lak í netið, sjálfsmark.
Þrátt fyrir þetta áfall gáfust Blikar ekki upp og minnkuðu muninn í 2:1 stuttu síðar, á 80. mínútu. Varamaðurinn Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir átti þá glæsilegan sprett á vinstri kantinum, renndi boltanum þvert fyrir markið þar sem Heiða Ragney Viðarsdóttir var alein á fjærstönginni, tók við boltanum og þrumaði honum svo í netið af stuttu færi.
Skömmu síðar átti Heiðdís Lillýardóttir skalla eftir hornspyrnu en tókst ekki að stýra honum að marki og boltinn fór framhjá.
Blikar héldu áfram að þjarma að heimakonum og uppskáru jöfnunarmark á annarri mínútu uppbótartíma. Samantha var þá skyndilega með pláss og tíma vinstra megin í vítateignum, þrumaði að marki og boltinn fór upp í þaknetið nær.
Staðan orðin 2:2 og reyndust það lokatölur.