Kominn aftur til Eyja frá KR

Vicente Valor í leik KR og KA í fyrstu umferð …
Vicente Valor í leik KR og KA í fyrstu umferð Bestu deildarinnar. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Eyjamenn hafa endurheimt spænska knattspyrnumanninn Vicente Valor sem fór frá þeim til KR-inga í vetur.

Valor, sem er 27 ára miðjumaður, átti drjúgan þátt í að koma Eyjamönnum upp í Bestu deildina á ný í fyrra og skoraði átta mörkí 20 leikjum fyrir þá í 1. deildinni á síðasta ári.

Hann var í byrjunarliði KR gegn KA í fyrstu umferð Bestu deildarinnar en kom síðan inn á sem varamaður gegn Val í annarri umferð.

Valor lék með nokkrum liðum í neðri deildum Spánar en var síðan í Bandaríkjunum í þrjú ár áður en hann kom til Vestmannaeyja fyrir síðasta tímabil.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert