Tíu FH-ingar fengu fyrsta stigið gegn KR

KR-ingurinn Luke Rae sækir en FH-ingurinn Ahmad Faqa verst í …
KR-ingurinn Luke Rae sækir en FH-ingurinn Ahmad Faqa verst í Kaplakrika í kvöld. mbl.is/Karítas

FH og KR skildu jöfn, 2:2, í Bestu deild karla í knattspyrnu á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði í kvöld.

FH fékk þar með sitt fyrsta stig en KR-ingar gerðu sitt þriðja jafntefli í jafnmörgum leikjum og eru því með þrjú stig.

Gabríel Hrannar Eyjólfsson og Eiður Gauti Sæbjörnsson skoruðu mörk KR en Björn Daníel Sverrisson og Baldur Kárason skoruðu fyrir FH. Björn Daníel var rekinn af velli á 51. mínútu þegar staðan var 1:1.

KR-ingar byrjuðu betur og skoruðu strax á 5.mínútu þegar Gabríel Hrannar Eyjólfsson skoraði laglegt mark eftir undirbúning Hjalta Sigurðssonar, 1:0 fyrir KR.

Heimamenn fengu dauðafæri á 11.mínútu þegar Björn Daníel Sverrisson fékk boltann eftir vandræðagang í vörn KR og átti sendingu á Kristján Flóka Finnbogason sem var í dauðafæri en skot hans fór af varnarmanni og aftur fyrir.

Björn Daníel jafnaði leikinn fyrir FH á 16.mínútu þegar hann skoraði með hörkuskalla eftir hornspyrnu, staðan 1:1.

FH-ingar héldu áfram að vera aðgangsharðir og á 23.mínútu átti Sigurður Bjartur Hallsson gott skot sem var varið af Halldóri í marki KR

Liðin skiptust á að sækja út hálfleikinn, KR var meira með boltann en FH-ingar komust oft í álitlegar stöður.

Heimamenn áttu fyrsta alvöru færið þegar 5 mínútur voru liðnar af seinni hálfleik. Mistök í vörn KR leiddu til þess að boltinn endaði hjá Kjartani Kára sem átti hörkuskot rétt utan vítateigs en Halldór í markinu varði vel í horn.

Það dró svo til tíðinda á 52.mínútu en í hápressu FH-inga á vörn KR átti Björn Daníel Sverrisson, fyrirliði FH, hörkutæklingu á Júlíusi Mar, fyrirliða KR, og uppskar beint rautt spjald. Að mínu mati harður dómur en sanngjarn.

Heimamenn fengu heldur betur blóð á tennurnar við þetta mótlæti og eftir aukaspyrnu inná teig af hægri kanti á vallarhelmingi KR þá barst boltinn utarlega í teiginn á Baldur Kára Helgason sem átti þetta þrumuskot sem endaði í markinu. Hafnfirðingar komnir yfir, 2:1!

Stuttu síðar átti markaskorari KR, Gabríel Hrannar Eyjólfsson, hörkuskot úr dauðafæri sem Mathias Rosenörn í marki FH varði listilega vel.

Á 73. mínútu fékk Luke Rae, leikmaður KR, boltann á hægri kanti. Luke átti frábæra sendingu inní teig FH, beint á pönnuna á Eiði Gauta Sæbjörnssyni sem kláraði færi með frábærum skalla. Staðan orðin aftur jöfn í Kaplakrika, 2:2.

KR-ingar lágu svolítið á heimamönnum í restina, sem voru nánast í handboltavörn um tíma, en þeir héldu það út. Svo var það í blá, blálokin þá komst Arnór Borg Guðjohnsen, varamaður FH, í færi og skot hans var varið á nærstöng og heimamenn fengu horn.

Hornspyrnan kom inná teiginn og þar mætti Arnór Borg með hörkuskalla, en yfir fór hann. Lokastaðan 2:2.

FH 2:2 KR opna loka
90. mín. Uppbótartíminn er 5 mínútur
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert