Baráttan um Bauhaus

Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar.
Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, var að vonum sáttur er hann mætti í viðtal til mbl.is eftir 1:0-sigur liðsins gegn Víkingi í Bestu deild karla í kvöld.

„Mér fannst verðskulda sigurinn, auðvitað er ég hlutdrægur, en þetta er geggjuð liðsheild og frábær trú. Það er það sem uppskar þetta. Mikið hrós á strákana og stuðningurinn í stúkunni var geggjaður, það hjálpaði okkur að halda hreinu þannig tilfinningin er bara frábær,“ sagði Magnús í viðtali við mbl.is eftir leik.

Spilamennska Aftureldingar var ekki frábær í fyrstu tveimur leikjum en liðið tapaði fyrir Breiðablik í fyrstu umferð, 1:0, og gerði markalaust jafntefli við ÍBV í annarri umferð.

„Við vorum ekki ánægðir með spilamennskuna í fyrstu tveimur leikjunum og fannst við vera að spila undir pari. Menn kannski aðeins of mikið inni í skelinni, komnir á stærra svið og ennþá að venjast því. 

En ég held að menn séu búnir að átta sig á því að þetta mót eru 27 leikir og að þeir þurfa að mæta í leik klárir. Menn held ég hafi sleppt fram af sér beislinu í dag og sýnt hvað þeir geta.“

Afturelding mætir Fram í Úlfarsárdalnum í næstu umferð á mánudaginn.

„Fram er með gott lið og þetta er hörkuleikur, nágrannaslagur, baráttan um Bauhaus. Það verður stutt að fara fyrir stuðningsmenn okkar og vonandi mæta þeir á völlinn og gefa okkur orku eins og í kvöld. Við þurfum strax að undirbúa þennan leik núna. Við viljum meira þannig við verðum að vera klárir í bátana á mánudaginn,“ sagði Magnús að lokum.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert