Jón Þór Hauksson, þjálfari Skagamanna, segir það með ólíkindum að lið sitt hafi ekki náð að skora miðað við þau færi sem það fékk í tapleik sínum gegn KR í kvöld, sérstaklega í byrjun leiks.
-En var þetta kannski gamla klisjan um að mönnum er refsað ef þeir nýta ekki færin? „Já, og við spiluðum það líka svolítið upp í hendurnar á þeim. Við gefum nánast fyrstu tvö mörkin. Þeir eiga innkast og við kinksum á boltanum, þannig að þeir ná að þvæla honum inn á nærstöngina, mjög ódýrt mark, og seinna markið, þá komast þeir inn í þversendingu, þannig að það eru nánast gjafir frá okkur í fyrri hálfleik þar sem við vorum með góð tök á leiknum.“ segir Jón Þór.
Hann segir að það hafi verið erfitt fyrir sitt lið að koma út í seinni hálfleik tveimur mörkum undir á móti þessu KR-liði, en að Skagamenn hafi þó gert það mjög vel. „Við vorum að skapa okkur færi, og Viktor fær t.d. tvö mjög góð skallafæri og var hársbreidd yfir þegar hann reyndi að skjóta yfir markmanninn, þannig að við erum áfram að vinna þær stöður og komast í hættulegar stöður, en við náðum bara ekki að klára það.“
Jón Þór segir að frá þeim sjónarhóli hafi þriðja mark KR komið nokkuð gegn gangi leiksins, en að það hafi endanlega dregið tennurnar og allan mátt úr Skagamönnum.
Aðspurður hvernig menn koma til baka eftir svona tap, segir Jón Þór að þeir verði bara að koma sér á fætur og gera betur. „Við þurfum að líta í spegilinn í fyrramálið og sjá hvað við getum gert betur.“
Næsti leikur Skagamanna er gegn KA á heimavelli. Jón Þór segir að sínir menn hljóti að vilja koma til baka eftir svona leik, og fá þar gott tækifæri til þess, en hann gerir ráð fyrir að leikurinn fari fram á aðalvelli félagsins, en ekki innandyra líkt og leikurinn gegn Vestra.