Markvörðurinn Ólafur Íshólm Ólafsson hefur skrifað undir tveggja ára samning hjá Leikni. Hann kemur til liðsins frá Fram.
Ólafur óskaði þess að yfirgefa Fram en hann var ósáttur með ákvörðun Rúnars Kristinssonar þjálfara Fram að byrja Viktori Frey Sigurðssyni í deildarleik gegn ÍBV.
Ólafur, sem er 29 ára, gekk til liðs við Fram árið 2019 er hann kom frá Breiðabliki.
Leiknir mætir Þrótti í fyrsta leik 1. deildarinnar næsta föstudag.