Erum að leita logandi ljósi

Rúnar Kristinsson á hliðarlínunni í kvöld.
Rúnar Kristinsson á hliðarlínunni í kvöld. Ljósmynd/Kristinn Steinn

Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, var að vonum kátur er hann mætti í viðtal til mbl.is eftir öruggan 3:0-sigur liðsins gegn Aftureldingu í Bestu deild karla í knattspyrnu.

„Frábær sigur og frábært svar við lélegum leik okkar í Vestmannaeyjum. Menn lögðu á sig mikla vinnu, mikla baráttu og það þurfti svo sannarlega til gegn spræku og mjög góðu liði Aftureldingar.

Þeir þrýstu okkur oft í fyrri hálfleik og þó að við værum í stöðunni 2:0 í hálfleik þá fannst mér það ekki alveg gefa rétta mynd. Við hefðum alveg getað skorað fleiri og við björgum oft mjög vel og Viktor [Freyr Sigurðsson] var frábær í markinu,“ sagði Rúnar.

„Menn þorðu að spila fótbolta. Við fórum í hápressu og spiluðum svolítið maður á mann á móti þeim og vildum reyna að stela boltanum af þeim hátt á vellinum því þeir eru duglegir að spila út úr vörn.

Við náðum kannski aðeins að hrista upp í þeim og hræða þá með því að stela boltanum af þeim nokkrum sinnum. Þá verður meira óöryggi í þeirra leik,“ bætti Rúnar við. 

Er þetta besti leikurinn ykkar í sumar?

„Svona heilt yfir í 90 mínútur þá vorum við nokkuð góðir. Í seinni hálfleiknum erum við meira að verjast en við eigum fín upphlaup sem drepa leikinn. Þannig heilt yfir í 90 mínútur, kannski það besta.“

Fram missti markvörðinn Ólaf Íshólm Ólafsson í gær en hann yfirgaf félagið eftir að hafa verið ósáttur með ákvörðun Rúnars að setja hann á bekkinn. Rúnar segir félagið vera að leita að nýjum markverði en félagaskiptaglugginn lokar á morgun.

„Við erum bara að leita að markmanni til að bæta í leikmannahópinn okkar til að hafa fleiri markmenn á æfingum. Við erum bara með tvo eins og staðan er og annar er í öðrum flokki og hann þarf að spila leiki þar. Við þurfum að geta æft með tvo markmenn þannig að við þurfum að fá einn í viðbót inn í teymið og erum að leita logandi ljósi að einhverjum möguleika í því,“ sagði Rúnar.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert