Guðný Árnadóttir landsliðskona í knattspyrnu hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við félag sitt Kristianstad í Svíþjóð.
Guðný, sem er 24 ára gamall varnarmaður, gekk í raðir Kristianstad í fyrra eftir fjögur ár hjá AC Milan, þar sem hún var í eitt ár á láni hjá Napolí.
Á Íslandi lék Guðný með FH og Val en hún á að baki 38 landsleiki.
Kristianstad er mikið Íslendingalið en Elísabet Gunnarsdóttir þjálfaði það í yfir áratug. Samherjar Guðnýjar í liðinu eru Alexandra Jóhannsdóttir og Katla Tryggvadóttir.