4. umferð: Fimm náðu stórum áföngum

Hallgrímur Mar Steingrímsson í leik KA og FH þar sem …
Hallgrímur Mar Steingrímsson í leik KA og FH þar sem hann lék í 200. skipti í efstu deild. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Anton Ari Einarsson, Hallgrímur Mar Steingrímsson, Matthías Vilhjálmsson, Aron Bjarnason og Tryggvi Hrafn Haraldsson náðu allir stórum áföngum á ferlinum í fjórðu umferð Bestu deildar karla í fótbolta sem lauk í gærkvöld.

Hallgrímur Mar lék sinn 200. leik í efstu deild þegar KA vann FH 3:2 og hann hélt upp á það með því að leggja upp  tvö marka Akureyrarliðsins. Hallgrímur hefur samtals leikið 354 deildaleiki á ferlinum. Af leikjunum í efstu deild eru 186 fyrir KA, sem er félagsmet, og 14 fyrir Víking í Reykjavík.

Anton Ari Einarsson - 200 leikir í efstu deild.
Anton Ari Einarsson - 200 leikir í efstu deild. Ljósmynd/Þórir Tryggvason


Anton Ari
lék einnig sinn 200. leik í efstu deild þegar hann hélt marki Breiðabliks hreinu á Ísafirði í sigri gegn Vestra á sunnudaginn, 1:0. Af þessum 200 leikjum eru 123 fyrir Breiðablik og 77 fyrir Val en deildaleikir Antons eru samtals 244.

Matthías Vilhjálmsson - 200 leikir í efstu deild á Íslandi …
Matthías Vilhjálmsson - 200 leikir í efstu deild á Íslandi og 189 í Noregi. Ljósmynd/Inpho Photography

Matthías Vilhjálmsson varð sá þriðji til að spila 200. leikinn í efstu deild á Íslandi í umferðinni þegar hann lék með Víkingi gegn Val í gærkvöld. Þar af eru 163 leikir með FH og 37 með Víkingi. Matthías hefur samtals leikið 435 deildaleiki á ferlinum og þar af eru 219 í Noregi, 189 þeirra í norsku úrvalsdeildinni.

Aron Bjarnason - 250 deildaleikir á ferlinum.
Aron Bjarnason - 250 deildaleikir á ferlinum. Morgunblaðið/Árni Sæberg

Aron Bjarnason úr Breiðabliki lék sinn 250. deildaleik á ferlinum, heima og erlendis, í leiknum gegn Vestra. Þar af er 161 leikur í efstu deild hér á landi með Breiðabliki, Val, ÍBV og Fram, en einnig 74 leikir í efstu deildum Svíþjóðar og Ungverjalands með Sirius og Újpest.

Tryggvi Hrafn Haraldsson - 200 deildaleikir.
Tryggvi Hrafn Haraldsson - 200 deildaleikir. mbl.is/Karítas

Tryggvi Hrafn Haraldsson lék sinn 200. deildaleik á  ferlinum þegar Valur tók á móti Víkingi í gærkvöld. Þar af eru 160 leikir í efstu deild á Íslandi fyrir Val og ÍA og 37 deildaleikir í Noregi og Svíþjóð.

Alex Þór Hauksson lék sinn 100. leik í efstu deild á Íslandi þegar hann lék með Stjörnunni gegn ÍBV í Garðabæ í gærkvöld. Þar af eru 76 fyrir Stjörnuna og 24 fyrir KR.

Hrannar Björn Steingrímsson, bróðir Hallgríms Mars, skoraði tímamótamark fyrir KA í sigrinum gegn FH. Hann skoraði fyrsta mark leiksins og það var 600. mark Akureyrarliðsins í efstu deild.

Patrick Pedersen í leik Vals og Víkings í gærkvöld. 120 …
Patrick Pedersen í leik Vals og Víkings í gærkvöld. 120 mörk og 50 leikir í röð. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Patrick Pedersen, framherji Vals, lék sinn 50. leik í röð með Val í Bestu deildinni gegn Víkingi. Hann hefur leikið lengst núverandi leikmanna í deildinni án þess að missa úr leik. Patrick skoraði jafnframt sitt 120. mark í deildinni í leiknum og aðeins Tryggvi Guðmundsson (131) og Ingi Björn Albertsson (126) hafa áður náð því.

Sindri Þór Ingimarsson, miðvörður Stjörnunnar, skoraði tvö fyrstu mörk sín í efstu deild þegar Stjarnan tapaði 3:2 fyrir ÍBV í Garðabæ í gærkvöld. Sindri hafði ekki skorað mark í fyrstu 69 leikjum sínum í deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert