Vestri hefur fengið knattspyrnumanninn Arnór Borg Guðjohnsen lánaðan frá FH en gengið var frá skiptunum í kvöld.
Arnór hefur ekki fengið tækifæri í byrjunarliði FH á þessu keppnistímabili en komið inn á sem varamaður í öllum fjórum leikjum liðsins.
Arnór er 24 ára gamall kantmaður sem hefur leikið 85 leiki í efstu deild með FH, Víkingi og Fylki og og skorað í þeim sex mörk.
Þá hefur Vestri fengið til sín Abdourahmane Diagne, tvítugan miðjumann frá Senegal, sem einnig er kominn með leikheimild.