Knattspyrnumarkvörðurinn Sveinn Sigurður Jóhannesson er genginn til liðs við Val að nýju eftir ársdvöl hjá Vestra.
Sveinn Sigurður er þrítugur og tókst ekki að spila fyrir Vestra á síðasta tímabili eftir að hafa slitið hásin áður en það hófst.
Hann var áður á mála hjá Val á árunum 2018 til 2023 en ólst upp hjá Stjörnunni.
Fjórir markverðir eru nú á mála hjá Val þar sem Stefán Þór Ágústsson hefur staðið í markinu í upphafi tímabils, Frederik Schram var á dögunum keyptur aftur til félagsins, Ögmundur Kristinsson hefur verið að glíma við meiðsli að undanförnu auk þess sem Sveinn Sigurður hefur nú bæst við.