Sóttu markvörð á kunnuglegar slóðir

Framarar bættu við sig markverði.
Framarar bættu við sig markverði. Ljósmynd/Kristinn Steinn

Fram hefur fengið knattspyrnumarkvörðinn Bjarka Arnaldarson að láni frá Leikni úr Reykjavík.

Bjarki er 22 ára gamall og á að baki einn leik fyrir Leikni í 1. deild á síðasta tímabili og tvo í bikarkeppninni á yfirstandandi tímabili.

Fram var í leit að varamarkverði eftir að Ólafur Íshólm Ólafsson samdi á dögunum við Leikni til næstu tveggja ára.

Þess má geta að Viktor Freyr Sigurðsson, sem er nú aðalmarkvörður Fram, kom einmitt frá Leikni fyrir tímabilið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert