Fyrirliðinn enn að glíma við höfuðverk

Selma Dögg Björgvinsdóttir fagnar marki.
Selma Dögg Björgvinsdóttir fagnar marki. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Selma Dögg Björgvinsdóttir, fyrirliði Víkings úr Reykjavík, er enn að jafna sig á höfuðhöggi sem hún lenti í í æfingaleik við Þrótt úr Reykjavík fyrir tímabilið í Bestu deildinni í fótbolta. 

Selma hefur ekki enn náð að spila fyrir Víking á tímabilinu en hún meiddist illa í æfingaleik gegn Þrótti fyrir tímabilið. Hún hefur fengið höfuðverk af og til og getur því ekki spilað eins og er.

Víkingur dróst gegn Þrótti í 16-liða úrslitum bikarkeppninnar en leikurinn fer fram mánudaginn 12. maí, eða eftir rúmar tvær vikur. 

Selma vonast til þess að vera komin aftur fyrir þann tíma, en það er óljóst. Hún og Víkingsteymið eru að taka þetta frá degi til dags. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert