Óskar Smári Haraldsson þjálfari Fram er spenntur fyrir leik liðsins gegn bikarmeisturum Vals í 16-liða úrslitum bikarkeppni kvenna í knattspyrnu.
Fram dróst á móti Val og munu liðin leika á heimavelli Fram í Úlfarsárdal þann 12. maí. Liðin mættust einnig í 16-liða úrslitunum í fyrra en þá vann Valur 8:0-sigur. Framliðið var aftur á móti í B-deildinni þá.
„Við fengum Breiðablik fyrir tveimur árum, Val í fyrra og Val í ár. 16-liða úrslitin eru þannig sett hjá okkur að við eigum að fara erfiðu leiðina að þessu.
Það gekk ekki vel síðustu tvö skiptin en vonandi með tilkomu heimaleiksins getum við gert eitthvað skemmtilegt og strítt Valskonum, sem eru auðvitað með eitt besta lið landsins.
Við fáum núna fjóra heimaleiki í röð sem er frábært fyrir okkur. Allir í Úlfarsárdalnum verða bara að taka sumarfríin sín í júlí fyrst við erum að fá þessa fjóra heimaleiki.
Ég er gríðarlega spenntur fyrir þessu og ánægður að fá Valskonur í heimsókn,“ sagði Óskar Smári eftir dráttinn.
Fram fékk skell gegn Íslandsmeisturum Breiðabliks, 7:1, á Kópavogsvelli í gærkvöldi. Framliðið er þá enn án stiga eftir þrjá leiki.
Hvernig hefur þér fundist byrjun tímabilsins?
„Tímabilið er svo langt og við erum að læra og verðum að læra snöggt. Við erum nýliðar og gerum okkur grein fyrir því að við erum að stíga á grundu sem við höfum ekki stigið á áður.
Aðeins þrír leikir eru búnir og frammistaðan misjöfn. Niðurstaðan er þó núll stig og við getum ekki horft framhjá þeirri staðreynd.
Á sama tíma er allt of mikið eftir til að fara í einhverjar skotgröfur og verða lítil í okkur. Við eigum heimaleik gegn FHL á laugardaginn og það segir sig sjálft að það er hörkuleikur.
Þetta er mjög skemmtilegt og gefandi og þú sérð það ekki á leikmannahópi Fram að það sé einhver krísa eða leiðindi í gangi.“
Hefur þú sem þjálfari lært mikið í byrjun móts?
„Alveg gríðarlega mikið. Í fyrsta lagi er ég í mikilli forréttindastöðu að vera þjálfa í deildinni. Öll liðin eru ofboðslega vel þjálfuð og mönnuð.
Ég hef lært mikið af mínu liði líka. Ég hef séð stelpurnar í mótlæti vera læra og þroskast.
Ég get sagt að eftir aðeins þrjá leiki stend ég á öðrum stað en fyrir tímabilið.
Ég fer líka inn í þetta tímabil með opinn hug og geri mér grein fyrir því að ég sé yngsti þjálfarinn í deildinni og frá því að ég var hérna síðast hefur deildin breyst mikið. Ég þarf eins og leikmenn að læra og læra hratt.
Ég sé hlutina aðeins öðruvísi núna en fyrir þremur vikum, en myndi ekki segja að ég væri slakari fyrir leikinn.“
En hvernig ætlar Fram að stríða Valskonum?
„Valsliðið er mjög gott og hefur sýnt góða frammistöðu varnar- og sóknarlega það sem af er.
Kristján Guðmundsson þjálfari Vals er mjög góður og hefur sínar leiðir til að spila fótbolta og ég þekki þær ágætlega. Það ætti að hjálpa mér og mínu liði.
Við verðum fyrst og fremst að eiga toppleik og mæta þeim í hörku og baráttu og sýna úr hverju við erum gerð.
Kannski ekki beint að horfa á hversu góður mótherjinn er heldur frekar líta inn á við og finna okkar styrk í því sem við erum góð í. Ef við náum því þá held ég að þetta geti orðið áhugaverð og skemmtileg viðureign,“ bætti Óskar Smári við.