Sigurborg Katla Sveinbjörnsdóttir, markvörður Víkings úr Reykjavík, varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark í tapi liðsins fyrir Þrótti úr Reykjavík, 1:0, í þriðju umferð Bestu deildar kvenna á Víkingsvelli í gærkvöldi.
Sigurmark Þróttara kom á 20. mínútu en þá átti Katie Cousins skot af stuttu færi sem hafnaði í stönginni en í bakið á Sigurborgu fór boltinn síðan og í netið.
Markið og fleiri svipmyndir úr leiknum má sjá á YouTube-síðu Bestu deildarinnar og hér fyrir neðan.