EM-treyjan sækir innblástur í norðurljósin

Natasha Anasi, Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir, Eyþór Wöhler, Telma Ívarsdóttir og …
Natasha Anasi, Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir, Eyþór Wöhler, Telma Ívarsdóttir og Berglind Rós Ágústdóttir. mbl.is/Eyþór

Knattspyrnusamband Íslands kynnti nýja landsliðstreyju á EM-hófi KSÍ og Puma í Landsbankanum í Reykjastræti í Reykjavík í dag. 

Puma framleiðir sérstakar treyjur sem liðið mun spila í í stað hefbundinna varabúninga á Evrópumótinu í Sviss í sumar. 

Treyjan er sérhönnuð og sækir innblástur í hreyfingar norðurljósanna og flæði jökuláa landsliðsins. 

Treyjurnar eru þá að nær öllu leyti úr endurunnu efni. 

EM treyjurnar eru væntanlegar í sölu á fyririsland.is og í allar helstu verslanir í lok maí mánaðar. Mjög takmarkað magn verður í sölu hér innanlands.     

Alexandra Jóhannsdóttir og Natasha Anasi í nýju treyjunni.
Alexandra Jóhannsdóttir og Natasha Anasi í nýju treyjunni. Ljósmynd/KSÍ
Guðmundur Ingi Kristinsson, annar frá vinstri, menntamálaráðherra og Þorvaldur Örlygsson …
Guðmundur Ingi Kristinsson, annar frá vinstri, menntamálaráðherra og Þorvaldur Örlygsson formaður KSÍ, lengst til hægri, í dag. mbl.is/Eyþór
Helena Ólafsdóttir var mætt.
Helena Ólafsdóttir var mætt. mbl.is/Eyþór
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert