Leik KR og ÍBV í Bestu deild karla í knattspyrnu sem fer fram á morgun hefur verið seinkað um tvær klukkustundir vegna færðar frá Vestmannaeyjum.
Um heimaleik KR er að ræða en hann fer fram á Þróttarvelli í Laugardal. Upphaflega átti hann að hefjast klukkan 17.
Nýr leiktími er hins vegar klukkan 19 þar sem Eyjamenn freista þess að komast til höfuðborgarinnar þegar vonskuveður gengur niður.