Þórsarar sannfærandi í Efra-Breiðholti

Sigfús Fannar Gunnarsson skoraði þrennu fyrir Þór í kvöld.
Sigfús Fannar Gunnarsson skoraði þrennu fyrir Þór í kvöld. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Þórsarar frá Akureyri gerðu góða ferð til Reykjavíkur í kvöld og lögðu Leikni að velli í Efra-Breiðholti, 4:1, í annarri umferð 1. deildar karla í knattspyrnu.

Þór er þá með fjögur stig eftir fyrstu tvo leiki sína en Leiknismenn eru með eitt stig.

Akureyringarnir gerðu nánast út um leikinn á fyrstu 20 mínútunum þegar þeir skoruðu þrisvar. Fyrst Atli Þór Sindrason, þá skoraði Sigfús Fannar Gunnarsson tvívegis og staðan var orðin 3:0.

Djorde Vladisvljevic minnkaði muninn fyrir Leikni í byrjun síðari hálfleiks en eftir 70 mínútur missti Breiðholtsliðið reynsluboltann Sindra Björnsson af velli með rautt spjald.

Sigfús innsiglaði svo sigur Þórsara með sínu þriðja marki skömmu fyrir leikslok, 4:1.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert