Við urðum að lágmarka líkurnar

Beðið eftir boltanum í Kaplakrika í kvöld.
Beðið eftir boltanum í Kaplakrika í kvöld. mbl.is/Eyþór

FH hélt áfram á sigurbraut í Bestu deild kvenna í knattspyrnu þegar liðið sigraði Stjörnuna á Kaplakrikavelli í kvöld, 2:1.

Aðstæður til knattspyrnuiðkunar voru ekki góðar þar sem veðrið var oft og tíðum afar slæmt. Guðni Eiríksson þjálfari FH var að vonum ánægður með fjórða sigur FH í fimm leikjum og þá staðreynd að FH er taplaust eftir fyrstu fimm umferðirnar.

Þín fyrstu viðbrögð eftir þennan leik?

„Fyrstu viðbrögð eru að ég er gríðarlega sáttur við þrjú stig. Þetta var erfiður leikur, leikur tveggja hálfleika, og ég vissi svo sem að þetta yrði erfitt veðurfarslega séð. Veðrið hafði rosalega mikið að segja og gerði fyrri hálfleik mjög erfiðan.

Þetta eru tvö lið sem spila mjög ólíka stíla. Annars vegar lið sem er mjög þétt til baka og sprengir síðan upp. Síðan við sem reynum að halda í boltann og finna lausnir. Það var rosalega erfitt. Það var erfitt að stýra boltanum því vindurinn var mikill.

Þökk sé Aldísi (Guðlaugsdóttur) fórum við bara 1:0 undir í hálfleik. Við vissum að seinni hálfleikurinn myndi vera meira okkar megin og mjög gott að setja mark snemma í seinni hálfleik. Síðan gerum við annað markið sem var frábært. Við reyndum að skora þriðja markið en það tókst ekki.“

Leikplanið verður mjög flókið

Hvernig leggur maður upp leik þegar maður veit að veðurguðirnir munu vinna á móti þér í leiknum?

„Þá snýst þetta bara um karakter, baráttuvilja, viljastyrk og allt svoleiðis. Það er ekkert annað í stöðunni. Leikplanið verður mjög flókið. Að fara í gegnum línur hjá liði sem er mjög þétt fyrir er mjög erfitt þegar vindurinn feykir boltanum hingað og þangað.

Guðni Eiríksson fer vel af stað með lið FH í …
Guðni Eiríksson fer vel af stað með lið FH í ár. Ljósmynd/Kristinn Steinn

Við vissum að fyrst við byrjuðum með vindinn í andlitið að þá þyrftum við að lágmarka líkur á að fá á okkur mörk. En við fengum á okkur eitt mark. Það var samt aldrei neitt panik á leikmönnum þrátt fyrir það því við vissum að við værum í betri málum í seinni hálfleik.

Þegar við komum jöfnunarmarkinu inn þá hafði ég fulla trú á því að við kæmum inn öðru marki í ljósi þess hversu snemma við jöfnum. Leikmenn FH hafa verið á skotskónum og við komum okkur alltaf í færi.“

Næsti leikur er gegn Þrótti sem er líka á skotskónum og er með 13 stig líkt og FH. Þróttur hefur verið gríðarlega sterkt varnarlega og fengið á sig fá mörk eins og FH. Hvernig sérðu fyrir þér að brjóta niður varnarmúra þeirra?

„Vonandi verða verðurguðirnir okkur hliðhollir svo við getum spilað okkar leik. Það verður erfitt að brjóta Þróttara á bak aftur því eins og þú segir þá er það mjög skipulagt lið og sækir á ákveðnum stöðum. Við þurfum að koma í veg fyrir það og skapa okkur færi. Það er algjört lykilatriði að verða ofan á í baráttunni í þeim leik, fyrir okkur sjálfar og FH hjartað,“ sagði Guðni í samtali við mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert