Vorum yfir í öllum atriðum

Alda Ólafsdóttir fagnar marki sínu með Murielle Tiernan í kvöld.
Alda Ólafsdóttir fagnar marki sínu með Murielle Tiernan í kvöld. Ljósmynd/Kristinn Steinn

Fram hafði betur gegn Víkingi, 2:1, í Bestu deild kvenna í knattspyrnu í kvöld. Alda Ólafsdóttir, sem skoraði og lagði upp í leiknum, mætti í viðtal til mbl.is eftir leik.

„Tilfinningin er ótrúlega góð. Þetta var mjög góður leikur hjá okkur í dag og mér fannst við gera fyllilega vel,“ sagði Alda. 

Hvað er það sem lagði grunninn að þessum góða sigri í kvöld?

„Alvöru barátta allan leikinn, frá upphafi til enda. Við gáfumst aldrei upp og mér fannst við vera yfir í öllum atriðum.“

Tveir sigurleikir í röð í deildinni, það hlýtur að vera góð tilfinning?

„Já algjörlega, við erum komnar á sigurbraut og ég vonast að við verðum eins lengi á henni.“

Þið mætið Val í bikarnum næsta mánudag, hvernig leggst leikurinn í ykkur?

„Við vorum bara að klára þennan leik. Tveir dagar í næsta leik, ég er ekkert byrjuð að hugsa um hann, þannig að núna erum við bara ánægðar með sigurinn í kvöld og svo förum við á fullu að undirbúa þann leik.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert