Sandra María Jessen er skammt frá félagsmeti eftir að hún skoraði þrennu fyrir Þór/KA gegn FHL í 5. umferð Bestu deildar kvenna og tvær konur í deildinni náðu stórum áfanga í umferðinni.
Sandra hafði ekki skorað í fyrstu fjórum leikjum Akureyrarliðsins en hún var langmarkahæst og besti leikmaður deildarinnar í fyrra með 22 mörk.
Hún skoraði hins vegar þrívegis í sigri Þórs/KA á Reyðarfirði, 5:2. Þetta var hennar sjöunda þrenna í efstu deild og með því er hún einni þrennu frá félagsmetinu en Rakel Hönnudóttir hefur skorað átta sinnum þrennu fyrir Þór/KA.
Sandra er fjórtándi markahæsti leikmaður efstu deildar frá upphafi með 114 mörk, öll fyrir Þór/KA. Rakel er önnur hjá Þór/KA með 74 mörk.
Andrea Rut Bjarnadóttir kom mikið við sögu þegar Breiðablik vann Tindastól 5:1 á Sauðárkróki. Andrea lék þar sinn 100. leik í efstu deild en þar af er 51 leikur fyrir Þrótt og 49 fyrir Breiðablik. Hún skoraði eitt mark í leiknum og lagði upp önnur tvö. Andrea skorar að jafnaði í fjórða hverjum leik því þetta var hennar 25. mark í efstu deild.
Sæunn Björnsdóttir úr Þrótti lék sinn 100. leik í efstu deild þegar Laugardalsliðið vann góðan sigur á Val á Hlíðarenda, 3:1. Sæunn lék fyrst 16 leiki í deildinni með Haukum, þá 18 leiki með Fylki en hefur nú spilað 66 leiki fyrir Þrótt í deildinni og er orðin sú sjötta leikjahæsta hjá félaginu í efstu deild.
Birna Kristín Björnsdóttir, miðjumaður FH, hafði leikið 40 leiki í efstu deild án þess að skora. Í gærkvöld tók hún sig til og skoraði glæsilegt jöfnunarmark gegn Stjörnunni af 25 metra færi, sitt fyrsta mark í deildinni.
Berglind Björg Þorvaldsdóttir úr Breiðabliki er markahæst í deildinni með fimm mörk í fyrstu fimm leikjunum. Þessar hafa skorað mest:
5 Berglind Björg Þorvaldsdóttir, Breiðabliki
4 Freyja Karín Þorvarðardóttir, Þrótti
4 Samantha Smith, Breiðabliki
3 Agla María Albertsdóttir, Breiðabliki
3 Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir, Víkingi
3 Karen María Sigurgeirsdóttir, Þór/KA
3 Maya Hansen, FH
3 Sandra María Jessen, Þór/KA