Amanda er hollenskur bikarmeistari

Amanda Andradóttir er bikarmeistari.
Amanda Andradóttir er bikarmeistari. Ljósmynd/@FCTwenteVrouwen

Landsliðskonan Amanda Andradóttir og stöllur í Twente eru hollenskir bikarmeistarar eftir sigur á PSV, 2:1, í úrslitaleiknum í Rotterdam í dag. 

Lynn Groenewegen og Kayleigh van Dooren komu Twente í 2:0 en Amanda Andradóttir kom inn á 74. mínútu. PSV skoraði stuttu seinna en Twente hélt út. 

Liðin tvö eru einnig í mikilli toppbaráttu í deildinni en þau eru bæði með 54 stig þegar ein umferð er eftir. 

Twente er þó með fimm mörkum meira í markatölu og vinnur, eins og er, ef liðin enda jöfn að stigum. Twente fær AZ Alkmaar í heimsókn í lokaumferðinni en PSV fær Feyenoord í heimsókn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert