Gott gengi Vestra heldur áfram

Vestramenn halda góðu gengi sínu áfram.
Vestramenn halda góðu gengi sínu áfram. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Vestri er aftur kominn í toppsæti Bestu deildar karla í knattspyrnu eftir sigur á Aftureldingu, 2:0, í fyrsta leik sjöttu umferðar á Ísafirði í dag. 

Vestri er á toppnum með 13 stig en búinn að spila leik meira en Víkingur R. og Íslandsmeistarar Breiðabliks sem geta jafnað Ísfirðinga að stigum. Afturelding er í sjötta sæti með sjö stig. 

Fyrri hálfleikurinn var ekki mikið fyrir augað. Hins vegar komust heimamenn yfir á sjöundu mínútu þegar þeir fengu víti. Vestri fékk hornspyrnu sem fór ekki yfir fyrsta mann. Boltinn barst út á Diego Montiel sem fór inn á völlinn og sendi boltann í gegn á Morten Ohlsen Hansen. Axel hitti ekki boltann og sparkaði Olsen niður og dómarinn gat ekki annað en dæmt víti. Montiel steig á punktinn og setti boltann örugglega fram hjá Jökli Andréssyni, 1:0.

Fyrri hálfleikurinn einkenndist af því að liðin skiptust á að halda í boltann án þess að skapa sér mikið. Frá 20. mínútu tók Afturelding yfir og hélt boltanum vel út á velli og náðu að þrýsta Vestramönnum langt niður á völlinn. Þeir náðu að skapa sér einhver hálf færi en náðu ekkert að ógna Vestra að neinu viti. Vítið var eina skotið í fyrri hálfleik sem fór á markið. Staðan 1:0 eftir fyrri hálfleikinn.

Seinni hálfleikurinn hélt áfram í sama takti og sá fyrri endaði. Afturelding hélt vel í boltann og var miklu betri út á vellinum, án þess að skapa sér almennilegt færi. Gegn gangi leiksins voru það Vestramenn sem tvöfölduðu forystuna á 74 mínútu. Heimamenn fengu hornspyrnu og það myndaðist klafs eftir hornspyrnuna og boltinn berst inn á Olhsen sem var kominn einn á móti Jökli og renndir honum til hliðar á Arnór Borg Guðjohnsen sem setti hann í autt markið, 2:0 fyrir Vestra og Arnór Borg með mark í sínum fyrsta leik fyrir liðið. 

Eftir markið hélt leikurinn áfram í sama takti, Afturelding með boltann og leikurinn fjaraði út. Frábær sigur heimamanna sem koma sér í 13 stig og halda áfram að safna stigum. Afturelding spilaði ágætlega en var aldrei nálægt því að skora.

Vestri heimsækir Breiðablik í 16-liða úrslitum bikarsins í miðri viku en Afturelding heimsækir ÍA. Í næstu umferð Bestu deildarinnar heimsækir Vestri Fram og Afturelding fær KR í heimsókn. 

Vestri 2:0 Afturelding opna loka
90. mín. Afturelding fær hornspyrnu Komnir í uppbótartíma.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert