Sex marka leikur í Grindavík

Oumar Diouck skoraði tvö mörk fyrir Njarðvík.
Oumar Diouck skoraði tvö mörk fyrir Njarðvík. mbl.is/Óttar Geirsson

Grindavík og Fjölnir skildu jöfn, 3:3, í svakalegum leik í 1. deild karla í knattspyrnu í Grindavík í dag.

Bæði lið eru með eitt stig í níunda og tíunda sætinu.

Leikurinn fór af stað með látum en eftir aðeins þrettán mínútur var staðan 2:1 fyrir Fjölni. Rafael Máni Þrastarson skoraði bæði mörk Fjölnis en Ármann Ingi Finnbogason skoraði mark Grindvíkinga. 

Adam Árni Róbertsson jafnaði metin á 52. mínútu og var síðan aftur á ferðinni á 65. mínútu og kom Grindavík yfir, 3:2.

Hilmar Elís Hilmarsson varnarmaður Fjölnis fékk að líta rauða spjaldið á 87. mínútu. Þrátt fyrir það jafnaði Kristófer Dagur Arnarsson metin á sjöttu mínútu uppbótartímans. 

Nýliðarnir fengu skell

Njarðvík er á toppi 1. deildarinnar eftir að liðið valtaði yfir Völsung, 5:1, í Njarðvík í dag.

Njarðvík er með fjögur stig á toppnum en Völsungur er á botninum með engin stig.

Staðan var 3:0 í hálfleik fyrir Njarðvík en Amin Cosic, Dominik Radic og Oumar Diouck skoruðu mörkin. 

Diouck bætti við sínu öðru marki á 67. mínútu en skömmu síðar minnkaði Arnar Pálmi Kristjánsson muninn fyrir Völsung.

Völsungur missti mann af velli þegar stundarfjórðungur var eftir en Bjarki Baldvinsson fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt. 

Á 90. mínútu fékk Njarðvík víti. Diouck fór á vítapunktinn en skaut í slána. Símon Logi Thasaphong skoraði fimmta mark Njarðvíkur á þriðju mínútu uppbótartímans og þar við sat.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert