Blanc: Englendingar vilja alltaf vinna Frakka

Frakkar hafa unnið 21 leik í röð undir stjórn Blanc.
Frakkar hafa unnið 21 leik í röð undir stjórn Blanc. AFP

Laurent Blanc, þjálfari Frakklands, segir sína menn tilbúna í leikinn gegn Englandi á EM í dag en hann hefst klukkan 16.00

Frakkar láta ekkert gabbast af hjali Englendinga um að liðið sé ekki tilbúið eftir stuttan undirbúning.

„Við höfum líka átt við okkar vandamál að stríða. Englendingarnir verða tilbúnir. Það er engin spurning. Þeir vilja alltaf vinna Frakkland þannig að bæði lið þurfa að gleyma því sem áður hefur gerst og spila þennan leik af krafti,“ sagði Blanc á blaðamannafundi.

mbl.is

LEIKIR Í DAG - 24. APRÍL

Útsláttarkeppnin

LEIKIR Í DAG - 24. APRÍL

Útsláttarkeppnin