Hughreysti grátandi Frakka (myndskeið)

Frakkar áttu erfitt með að leyna vonbrigðum sínum eftir tapið …
Frakkar áttu erfitt með að leyna vonbrigðum sínum eftir tapið í gær. AFP

Ungur stuðningsmaður Portúgals hughreysti grátandi stuðningsmann Frakka eftir úrslitaleik EM í knattspyrnu í gær.

Frakkinn var niðurbrotinn eftir 1:0-tap í úrslitaleik á heimavelli og sá portúgalski bauð fram öxl til að gráta á. Hinn ungi Portúgali ræðir við Frakkann, huggar hann og á endanum fallast þeir í faðma.

Portúgal hafði sem kunnugt er betur, 1:0 eftir framlengdan leik, en Frakkar höfðu vonast til að tryggja sér Evrópumeistaratitilinn á heimavelli. Vonbrigði franskra stuðningsmanna voru því mikil eftir leikinn.

Myndskeið af stuðningsmönnum liðanna eftir leik má sjá hér fyrir neðan:

mbl.is

LEIKIR Í DAG - 25. APRÍL

Útsláttarkeppnin

LEIKIR Í DAG - 25. APRÍL

Útsláttarkeppnin